Bújah

14 02 2007

Eða eitthvað svoleiðis. Fór í ræktina áðan. Jæks… Átti ekki prótein í sheikinn minn svo ég fékk mér ekki neitt að borða fyrir ræktina sem hefur alveg gerst áður. En núna er ég gjörsamlega orkulaus. Sem betur fer fékk mamma prótein í gær og nú er verið að svolgra niður einu stykki sheik. Voða gaman. Er svo svo þreytt. Vaknaði kl 02,30 í nótt og gat engan vegin sofnað aftur, síðast þegar ég leit á klukkuna var hún 04,30 og ég fór svo á fætur um hálf níu. GEISP tók mig langan tíma að slást við letipúkann í hausnum og koma mér í ræktina langaði svo að koma aftur heim og leggja mig en NEIBB fór og er svaka stolt. Jæja best að horfa á Heroes og fara svo í sturtu. Vonandi gengur svona vel hjá ykkur líka. Kíki rúnt í kvöld. :D


Actions

Information

2 responses

14 02 2007
Vorblómið

Frábært að sjá hvað þú ert dugleg og þó svo að þú hafir ekki sofið hálfan dúr í nótt þá fórstu samt í ræktina…frábært hjá þér.

Til hamingju með þennan sterka viljastyrk – þú átt eftir að komast langt á honum!!!

15 02 2007
Assa (Auður)

Glæsilegur árángur hjá þér :D
Baráttu kveðjur

Leave a comment