Sit hér og sötra minn sheik. Svaf svo sem lengur en ætlun var. Þannig að engin rækt í dag. En ég er að fara í Byko og fá símanum mínum skipt LOKSINS. Hann er rétt um eins árs og hefur alltaf verið eitthvað klikk. Í gær reyndi pabbi minn að hringja og ég gat ekki svarað þar sem hvorugt tólið gaf frá sér hljóð. Hringdi því aftur í morgun og sagðist bara vera búin að gefast upp sem er sko löngu orðið satt. Tekur alltaf langan tíma að hitta þannig á að þú fáir són í símann. Jæja setja íþróttafötin í þvottavélina og skella sér í ræktina á morgun. Verst að ég get kannski ekki mikið, er svo illt í öðru “júgrinu” búin að fara til doksa og sagt að bíða bara þetta hlyti að fara. Vei ég og mín litla þolinmæði að bíða sko hahaha. Jæja ætli þetta sé ekki orðið fínt.