Jamm þetta er eins og að búa inn í svona snjókúlu sem maður hristir annað slagið. Svaka snjó flykki sem svífa voða hægt niður. Ekki alveg að ganga hjá mér ræktin (roðn). Og ekki maturinn heldur. Er búin að hesthúsa 2 stórum kalkúnabringu Subway í dag. Allt annað en ásættanlegt. Langar voða voða mikið að kaupa mér einn mán í einkaþjálfun aftur bara til að koma mér af stað aftur. En eninga meninga vantar meiri peninga.
Ætla nú samt að koma mér í gírinn aftur. Ekki missa mig í namminu á morgun. Bara kaupa eina tegund er takmark dagsins og þá er það alls ekki snakk. Maginn hatar snakk. Ekki bland í poka (sniff). Og ekki 2 lítra gos. En fer samt í mat hjá mágkonu minni er boðið í pitsu. Mmmmm…. Jæja ætli þetta sé ekki bara fínt. Enn eitt takmark er að hætta ekki að blogga þó ég standi mig ekki í matnum.
Hey já ég varð 25 um daginn og mamma mín er besta mamma í HEIMI. Gaf mér sko gjafabréf í snyrtihús og mmm… kósý, en einn galli hehe ég þarf að ákveða hvað ég vil gera þar hehe. Takk mútter voða happý með gjöfina.
Heyrumst
Þú kemst í gírinn aftur. Er ekki lífið alltaf svolítið svona? Gengur í bylgjum
Til hamingju með afmælið um daginn.