21 03 2007

Fór í ræktina í morgun. Jíss hvað mér leið illa að ganga þarna inn. Eins og allir vissu að ég hafi ekki staðið mig (en auðvitað er þetta bara í hausnum á mér). Tók 20 mín á brettinu og þar af 3 mín í hlaup. Svo 10 mín á stigvélinni. 3×20 magaæfingar á bolta, teygði á og kom mér heim. Ætla líka fara á morgun.

Undafarið hef ég nebbla ekki staðið mig sem skyldi og hef orðið vör við að þegar ég fer upp í rúm á kvöldin fer ég einhvern vegin alltaf að hugsa um skólaárin og þau voru nú ekki neitt æðislega skemmtileg. Er svona hálf skelkuð við það að Kristó minn sé að fara í skóla. Og pínu hrædd um að hann lendi í öllu því sem ég gerði. Ekki að það hafi verið líkamlegt einelti en ef ekki einelti þá veit ég ekki hvað ég á að kalla það kannski hunsun. Vildi helst bara gleyma þessu öllu en eins og núna þegar ég fer að sofa kemur þetta allt til baka.