21 03 2007

Fór í ræktina í morgun. Jíss hvað mér leið illa að ganga þarna inn. Eins og allir vissu að ég hafi ekki staðið mig (en auðvitað er þetta bara í hausnum á mér). Tók 20 mín á brettinu og þar af 3 mín í hlaup. Svo 10 mín á stigvélinni. 3×20 magaæfingar á bolta, teygði á og kom mér heim. Ætla líka fara á morgun.

Undafarið hef ég nebbla ekki staðið mig sem skyldi og hef orðið vör við að þegar ég fer upp í rúm á kvöldin fer ég einhvern vegin alltaf að hugsa um skólaárin og þau voru nú ekki neitt æðislega skemmtileg. Er svona hálf skelkuð við það að Kristó minn sé að fara í skóla. Og pínu hrædd um að hann lendi í öllu því sem ég gerði. Ekki að það hafi verið líkamlegt einelti en ef ekki einelti þá veit ég ekki hvað ég á að kalla það kannski hunsun. Vildi helst bara gleyma þessu öllu en eins og núna þegar ég fer að sofa kemur þetta allt til baka.


Actions

Information

4 responses

22 03 2007
Sigríður Hjördís

Glæsilegt hjá þér að mæta í ræktina :)
Vertu ekkert að velta þér upp úr því hvað hugsanlega-mögulega-kannski…eigi eftir að koma fyrir dúlluna þína í skóla. Það er ekkert sem segir það að þó þú hafir lent í einhverju þá eigi hann eftir að lenda í því líka. Þú hefur þessa reynslu og getur nýtt þér það til þess að hafa auga með honum og ef að eitthvað gerist, þá gerist það og þú vinnur þá úr því vandamáli – óþarfi að búa til vandamál löööngu áður en það kannski verður. En ég skil samt að þú hafir áhyggjur :)

25 03 2007
Lilja

Dugleg að skella þér í ræktna. En ég tek undir með Síu, plús það að í dag er fólk miklu meira vakandi fyrir einelti og fyrr gripið inn í ef virðist vera að stefna í óefni.

3 04 2007
Sara

Bara frábært hjá þér að fara í ræktina,,, En nú í dag er fólk orðið meira vakandi yfir einelti , og bara ekki hugsa að hann VERÐI fyrir því heldur að það gætir gerst …

Ég varð fyrir miklu einelti í skóla, einmitt hunsun og fleira , og varð aftur fyrir þvi í háskóla slapp alveg í framhaldsskóla….
Ég skrifa mig frá hugsununum ef ég get ekki sofnað út af svona þá fer ég að skrifa niður hvað það er sem er að pirra mig svona, bara skirfa mig í rauninni frá atburðinum … tek hann út …. æ veit ekki hvort að þú skiljir hvað ég meina en vonandi

25 04 2007
gorkulan

hey dúlla ertu nokkuð hætt að blogga:):)knús…

Leave a comment