Jæja ætli sé ekki best að fara koma sér í gírinn aftur. Talvan var bara á verkstæði eiginlega allan apríl nema yfir páskana en þá var ég ekki heima. Ég er sko alls ekki búin að vera standa mig. Enda er hart tekið á því núna. Búið að fara yfir heimilið og skutla öllu óhollu heim til múttu og sömuleiðis veskinu. Eina sem er hér er Herba dótið og skyr og morgunmatur fyrir strákinn. Er líka í kvöldmat heima hjá mömmu þar sem ég er verst á kvöldin. Þetta ætti að vera nóg til að koma mér aftur í gang.Þannig að svona lítur nýja matarplanið út ca: og já nottla fullt af vatni og grænu te.
morgunmatur: sheik með tilheyrandi vítamínum og svoleiðis
millibiti: ávextir ef ég verð svöng
hádegismatur: sheik með tilheyrandi eins og um morguninn
kaffi: skyr eða hrökkbrauð
kvöldmatur: bara heimilismatur hjá múttu bara minni skammtar