Jæja dagur nr1 búinn, tæknilega nr2 þar sem ég byrjaði á mánudegi en var með pest þá þannig að það telst líka með. Það gekk nú bara ágætlega. Nema fékk þessa svakalegu nart og nammilöngun upp úr 20:00. Svo ég ákvað að fá mér popp. Held það sé svo sem í lagi. Bara einn poki af Orville Light. Ekki einu sinni safi með en slatti af vatni eftir á. Þessi dagur kemur til með að verða betri. Svo er bara næsta skref að fara vakna á venjulegum tíma, er nefnilega komin ca 1klst á eftir venjulegri áætlun. Verð að koma mér í farið því strákurinn byrjar í skóla í haust og þá verður ekkert mehe með það að vakna.
Hehe já, það þýðir ekkert að lúra lengur þegar krakkarnir þurfa að mæta á réttum tíma í skólann
Áfram með þig