Jæja komin vika síðan ég byrjaði aftur. Er bara nokk sátt við mig. Fékk mér nú nammi á laugardaginn en ég hef bara líka ákveðið að það sé í lagi. Keypti meira segja snakkpoka til að stúta yfir Evróvisíon en þegar kom að því að snæða það þá langaði mér ekkert í það. Nartaði í 4-5 skífur og svo ekki meir. Bjó til þessa líka fanta fínu pizzu reyndar 3 en það voru margir í mat. Borðaði ekki of mikið og mjög sátt við það.
Svo á sunnudeginum var snakkið enn á borði og ég snerti það ekki. En mikið langaði mig samt í smá tíma. Er búin að vera rosa dugleg og drekka mitt herbalife og það er bara að virka núna. Svo er heitur matur heima hjá mömmu á kvöldin. Jæja ætli sé ekki best að skella sér í bælið. Var að reikna áðan og komst að því að það eru ekki nema 21 dagur þar til ég flýg til Köben og tek svo lestina yfir í Svíaríki. Góða nótt