ammælídag

14 03 2007

nei vitiði ég hef bara ekki byrjað á blessaðri bókinni. engin afsökun ekki neitt. ekki í stuði til að blogga núna. Kem aftur þegar ég kemst í stuðið.





búin í ræktinni

26 02 2007

Hvað ætli séu margar fyrirsagnir hjá mér sem byrja svona??

Alla vega búin og komin heim. Hætt að hlaupa eina ferðina enn. Núna er ég bara gera allt nema það. Nenni ekki að standa í því að verkja í löppunum. Skil svo sem afhverju, væri gaman að hlaupa á vigt og sjá hvað maður er þungur þegar ég er að taka hvert skref. Giska mjög mjög þung skref. hahah jæja farin í sturtu og svo að vinna. Ekki mikið meir að segja, nema nú verður tekinn hörku mánuður skrifa allt í bók og læt mömmu fá hana í vikulok held ég. Spá í að láta hana fá veski og kort líka til að minnka freistingarnar líka. Hefur virkað vel áður. OK bæjó





aðeins of hratt

21 02 2007

Jebb fór kannski aðeins of hratt af stað aftur. Sit hér við tölvuna hálfrangeygð og titrandi. Riða þegar ég stend. Svo nottla gleymdi ég líka að borða áður en ég fór í ræktina. Þetta er sko allt annað en góð tilfinning. Verð að setja hér inn mynd af syni mínum þegar hann var klár til að mæta í leikskólann í dag.





enginn titill

20 02 2007

Er aðeins skárri held ég. Samt ekki alveg viss. Er nefnilega ekki búin að borða morgunmat. Legg varla í það miðað við hvernig síðustu 2 dagar hafa verið. Ætla reyna að fara í vinnuna. Sé samt til þegar ég er búin að borða eitthvað. HATA HATA HATA magakveisur, ekki það þessi tegund er betri en hin tegundin. Fer samt ekki nánar út í það. Jæja vildi bara láta vita af mér. Já 2 kíló farin á þessum 2 dögum og ég er ekki að fagna því þau koma um leið og ég get borðað rétt og mætt í ræktina en falleg tala samt hlakka til að komast í hana fyrir alvöru :D





lasin

18 02 2007

Er komin með þessa skemmtilegu maga/garnapínu. Get ekki skrifað meir, en ég giska á að engin verði ræktin í fyrramálið. Vona samt að þetta hverfi í nótt er ekki alveg að höndla þetta. Ekkert smá orkulaus





smá tölur

15 02 2007

Er nú ekki búin að vera fara neitt voða lengi aftur í ræktina bara í um 3 vikur núna (YES) en ég er samt farin að sjá mun á tölum. Mæli alltaf bara öðru megin t.d. bara annað lærið og svoleis.

kíló            109,4 (08.01.07)        106,9 (15.02.07)
Kálfar                    44 cm                  43 cm                           
læri                        77 cm                72,5 cm
mjaðmir              129 cm                 127 cm
yfir nafla             125 cm              119,5 cm
mitti                    104 cm             103,5 cm
undir brjóst          97 cm                   95 cm
upphandleggur 34,5 cm                   34 cm
BMI                      41,2                       40,2
fituprósenta     43,3%(02.02.07)  42,9%(15.02.07)

Veit þetta eru ekki stórar tölur en ég er sátt við þær. Jæja búin í ræktinni í dag líka sit hér og kæli fæturnar svo mér fari nú ekki að verkja. Svo er að skella sér í sturtu og vinna.





Bújah

14 02 2007

Eða eitthvað svoleiðis. Fór í ræktina áðan. Jæks… Átti ekki prótein í sheikinn minn svo ég fékk mér ekki neitt að borða fyrir ræktina sem hefur alveg gerst áður. En núna er ég gjörsamlega orkulaus. Sem betur fer fékk mamma prótein í gær og nú er verið að svolgra niður einu stykki sheik. Voða gaman. Er svo svo þreytt. Vaknaði kl 02,30 í nótt og gat engan vegin sofnað aftur, síðast þegar ég leit á klukkuna var hún 04,30 og ég fór svo á fætur um hálf níu. GEISP tók mig langan tíma að slást við letipúkann í hausnum og koma mér í ræktina langaði svo að koma aftur heim og leggja mig en NEIBB fór og er svaka stolt. Jæja best að horfa á Heroes og fara svo í sturtu. Vonandi gengur svona vel hjá ykkur líka. Kíki rúnt í kvöld. :D





Ekki í gær en í dag.

13 02 2007

Fór sem sé ekki í ræktina í gær. Einhver leti í gangi því kallinn var farinn. En svaf yfir mig í morgun þannig að ég fór bara í ræktina klukkutíma seinna en venjulega. Tók svo bara mánudagsprógramið í dag. 90 mín í ræktinni er ekki slæmt. En nú þarf víst að fara vinna. Heyrumst á morgun eða í kvöld ef ég nenni.





Ekki í dag

11 02 2007

neibb fer ekki í ræktina í dag. Kallinn að fara á sjóinn í hádeginu og ræktin er bara opin frá 10-12. Hreinlega neita að hanga þar svona rétt áður en hann fer. Þannig að það verður aftur bara 5 mætingar í ræktina í þessarri viku. En hætti núna neita líka að hanga í tölvunni svona þangað til hann fer. tútsílú





Náði 5 mætingum

9 02 2007

Fór í ræktina í morgun og var voða dugleg. Nenni eiginlega ekki að blogga núna en er mjög mjög sátt við vigtina í dag líka. Kveðja að norðan :D