eða það finnst mér allavega. Fór sem sé í ræktina í morgun. Skítakuldi sem er að gera mig klikk. Alltaf svo kalt á höndunum. Svo er ræktin á morgun og þá er ég með 5 mætingar í þessari viku. Það er líka stór plús að vera svona blind eins og ég er þegar ég tek niður brillurnar því þá get ég ekki séð hvort fólk er að hafa fyrir því að glápa á mig svitna eins og svín (sem ég held reyndar að svín geri ekki??). Jamm ég sem sé ekki baun nema rétt á tölurnar en ekki fólkið, þannig að ef einhver hittir mig þá er ég ekki að dissa ykkur ég bara sé ekki rassgat. Jæja ætli þetta sé ekki komið nóg af svona babli. leiter
sviti sviti svitabað!
7 02 2007Fór í ræktina í morgun. Var samt ekki að nenna. Svo sybbin. Hörkudugleg samt, svitinn lak alveg af mér. Ekki búið að vera gaman að fara á vigtina. Hún situr sem fastast í 108,0 kg núna síðustu vikuna. En cm hrynja af mér. Þannig að fitan er greinilega á undanhaldi og vöðvar að koma í staðin hlýtur að vera. En samt að sjá enga breytingu og ég búin að vera svo dugleg, poppaði upp fitupúkinn og sagði þetta tekur því ekki og sýnir um súkkulaði og sætabrauð fylltu huga minn. Var ekki fyrr en ég mældi cm að ég náði að hrekja hann (púkann) burt. Nú held ég bara áfram og þá hljóta kílóin að fara líka. Jæja best að skella banana í trantinn og skella sér í sturtu því ég er sko klístruð af svita og DÝRKA það
Comments : 2 Comments »
Categories : Uncategorized
Engin rækt í dag
6 02 2007er með hausverk. Fékk hausverk (vægt mígreni sjálfsagt) í gærkveldi og það er ekki alveg farið úr mér. Fer samt á morgun.
Comments : Leave a Comment »
Categories : Uncategorized
búin í ræktinni
5 02 2007skelli meiru inn eftir vinnu. sturtan bíður
Comments : 1 Comment »
Categories : Uncategorized
4 02 2007
Fór í ræktina í morgun, bara svona rétt til að reyna minnka strengina. Tók 10 mín labb og 10 mín á skíðavélinni. Teygði vel á og svo heim í mat. Er reyndar með aðeins minni strengi þannig að það virkaði greinilega. Fer svo á morgun og tek mánudagsprógramið. Heyrumst seinna
Comments : 1 Comment »
Categories : Uncategorized
ái
3 02 2007Er með þessa líka svakalegu strengi í lærunum. Get varla labbað. Ætla samt að reyna að fara í ræktina á morgun og liðka þetta aðeins. En áááii er orð dagsins því þetta er kvöl. Jæja heyrumst á morgun.
Comments : Leave a Comment »
Categories : Uncategorized
harkan sex
2 02 2007Amm það þýðir að ég fór í ræktina í morgun þó ég hafi í raun ekki haft áhuga á því. Tók föstudagsprógramið og fílaði bara vel. En klaufinn ég….. er með prógramið á blaði og ætlaði að skrá inn hvað ég hafi verið að lyfta miklu og tek upp blýpennann og ætla að pumpa út blýinu eins og venjulega og ÁÁI penninn snéri á hvolf þannig að ég stakk þessu litla blýi sem var og járninu líka á kaf í þumalfingurinn minn. Blæddi ógurlega líka. En það jafnar sig. Jæja nú er ég að fara borða millimatinn minn, lítið epli og banana. Fer ekki í ræktina á morgun en fer á sunnudaginn. Heyrumst sjálfsagt bara þá. Síja
Comments : Leave a Comment »
Categories : Uncategorized
4 skiptið í vikunni
1 02 2007Var samt ekki að nenna hreyfa mig meira þegar ég var búin með 10 mín labb og 10 mín stigvél og 10 hjól, en fór samt í 10 mín á skíðavélina. Reyndi svo að taka magaæfingar á boltanum en sökum harðsperra frá helvíti gat ég bara gert þær á gólfinu. Ekki verra að gera 3×20 magaæfingar með strengi í maganum. Tók svo líka 2×15 bakæfingar þ.e.a.s. liggja á gólfinu og lyfta sér upp að framan (öfugar magaæfingar) Bíð nú bara eftir að klukkan slái yfir eitt svo ég geti farið að koma mér í vinnuna. Fattaði svo að líklegast sé betra að hafa laugardaga frí en mæta á sunnudögum. Því sonurinn er í íþróttaskóla á laugardögum og ég þarf nottla að mæta með honum. En jæja nenni ekki að mala meir tala seinna
Comments : Leave a Comment »
Categories : Uncategorized
mið vika
31 01 2007Ræktin í morgun, byrjaði aftur á æfingarprógraminu sem sett var upp fyrir mig. Ekki mikið annað að segja nema ég þarf að fara koma mér í vinnuna
tala seinna
Comments : 1 Comment »
Categories : Uncategorized
30 01 2007
Búin í ræktinni. Púl púl og meira púl. Bara kúl. Brettið í 20 mín, þar af bara 2 í hlaup. Vil ekki hlaupa of mikið til að reyna forðast að fá beinhimnubólgunar aftur. Svo stigvélin í 10 mín og loks hjól í 10 mín. 3×20 magaæfingar á bolta og svo 3×15 magaæfingar á gólfi (lyfta fótum)
Sit hér og er að súpa sheik. Komin með hugmynd um hvernig sé best að koma matnum í lag. Takið samt eftir að ég ætla ekki að borða þetta til lengdar bara svona mánuð til að byrja með. Á þrið, fimt 2 sheika á dag og svo kvöldmat. Reyni líka að troða 2 ávöxtum þarna inn á líka. Á mán, mið, föst 2 sheika á dag, 2 ávexti og hádegis eða kvöldmat. Lau eru frí en samt minnst 1 sheik á dag. Sunnudagar verða svipaðir og þrið og fimt.
Comments : 1 Comment »
Categories : Uncategorized