Tortillas

450 gr fínt spelt (eða hveiti)
1/4 tsk salt
3 msk olía
heitt vatn eftir þörfum

Öllu blandað saman og hnoðað vel saman (hægt að nota vél) þar til deigið loðir vel saman.

Við tökum bara smá hluta og fletjum hann út og setjum disk yfir til að móta hring, og skellum því svo á heita, þurra pönnu. Eldum þar til þær eru orðnar svona flekkóttar en ekki brenndar. Settar á fat og undir rakt viskastykki. Og það sama er gert við afganginn af deiginu.

Þetta er bara nammi gott

Leave a comment